Stjörnu-Sævar
- May 26
- 1 min read
Við fengum góðan gest í heimsókn fyrir nokkru. Það var Sævar Helgi Bragason sem við þekkjum betur sem Stjörnu Sævar. Hann sagði öllum nemendum skólans frá því fyrirbæri sem við munum væntanlega upplifa þann 12. ágúst næstkomandi, sólmyrkva og síðan almyrkva á sólu.
Kynningin var mjög skemmtileg og alveg ljóst að Sævar náði vel til nemenda á öllum aldri. Hann setti fyrirbærið upp á lifandi hátt (sjá mynd) sem útskýrði enn betur fyrir nemendum hvað gerist í náttúrunni þegar almyrkvi á sér stað.
Sævar vitnaði í vefsíðuna https://solmyrkvi2026.is/ þar sem hægt er að sjá m.a. hvar almyrkvinn mun sjást best. Einnig má setja inn staðsetningu (heimilisfang) og sjá t.d. úr hvaða átt almyrkvinn sést frá þeirri staðsetningu.
Allir nemendur Grunnskóla Snæfellsbæjar fá gefins sólmyrkvagleraugu. Þau verða sett í umslögin sem nemendur fá á skólaslitum. Sævar lagði mikla áherslu á mikilvægi þess að hafa slík gleraugu þegar fylgst er með sólmyrkvanum til þess að verja augun. Líklega væri gott að þið mynduð biðja börn ykkar að rifja upp hvað Sævar kenndi þeim varðandi notkun gleraugnanna. Frekari upplýsingar eru á síðunni https://solmyrkvagleraugu.is/ Hægt er að kaupa gleraugun í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Þetta eru vottuð gleraugu sem Sævar lét framleiða.


















Comments