top of page

Grænfáninn

  • 34 minutes ago
  • 1 min read

Lýsudeild Grunnskóla Snæfellsbæjar tók á móti sínum ellefta Grænfána þann 20. maí síðastliðinn en Grænfáninn er til merkis um að skóli hafi staðið sig vel í umhverfismálum og er tákn um árangursríka menntun til sjálfbærni og umhverfisstefnu í skólum. Hann er afhentur til tveggja ára í senn. Grænfáninn er útbreiddasta viðurkenning sinnar tegundar í heiminum og er haldið úti af samtökunum Foundation for Environmental Education (FEE).

Skólar velja sér tvö þemu innan verkefnisins til tveggja ára. Þemu Lýsudeildar tvö síðustu ár voru „hnattrænt réttlæti“ þar sem fræðst er um hagi annarra í heiminum og „átthagar og landslag“ þar sem nærumhverfi nemenda er til umfjöllunar.


Fulltrúi á vegum verkefnisins afhenti fánann á vorhátíð skólans og nemendur af unglingastigi veittu honum viðtöku. Gamli fáninn var síðan tekinn niður og sá nýi dreginn að húni.

Fram undan er að velja ný þemu í Grænfánaverkefninu til að vinna að til næstu tveggja ára.


 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

bottom of page