Heimsókn Nasa í Snæfellsjökulsþjóðgarð
Íbúar Snæfellsness hafa verið svo heppnir að fá fjóra vísindamenn frá bandarísku geimferðastofnunni Nasa í heimsókn. Vísindamennirnir voru hér í boði þjóðgarðsmiðstöðvarinnar sem átti frumkvæði að því að bjóða grunnskólunum á Snæfellsnesi að fá fræðslu frá þeim. Skólarnir nýttu sér allir boðið og fóru tveir hópar af yngsta stiginu í þjóðgarðsmiðstöðina en þær fóru svo á starfsstöðina í Ólafsvík og voru þar með fræðslu fyrir mið- og unglingastigið.
Einnig fóru þær í heimsókn í grunnskólana í Stykkishólmi og Grundarfirði. Fræðslan gekk mjög vel og voru nemendur almennt mjög áhugasamir og ófeimnir við að spyrja þær um allt milli himins og jarðar og greindum við mikinn áhuga og ánægju meðal nemenda með heimsóknina.
Sérsvið þeirra er Heliophysics (sólareðlisfræði) en nemendur komu aldrei að tómum kofa hjá þeim og fengu svör við spurningum um allt mögulegt sem snýr að himingeimnum, plánetum, geimveðri o.s.frv. Sjálfar voru þær mjög áhugasamar um norðurljós þar sem þær búa á svæði þar sem norðurljós sjást ekki og voru forvitnar um upplifanir nemenda af þeim.





















Comments