

Gjöf til skólans
Á dögunum afhentu slysavarnardeildirnar Sumargjöf og Helga Bárðar skólanum þrjá sjúkrakassa, einn fyrir hverja starfstöð. Sjúkrakassarnir eiga eftir að koma að góðum notum og viljum við þakka slysavarnardeildunum fyrir að hugsa til okkar. Á myndinni eru Vilborg Lilja Stefánsdóttir skólastjóri og Irma Dögg Toftum formaður slysavarnadeildarinnar Sumargjafar.


Leynigestur hjá 1.-4. bekk
Nemendur 1.-4. bekkjar syngja saman á sal skólans á föstudögum. Í dag fengum við leynigest til okkar en það var Ómar Hall fyrrverandi nemandi skólans sem kom og söng tvö lög eftir Pál Óskar og gerði það með stæl. Ómar talaði fallega til krakkanna og sagði þeim að hann saknaði gamla skólans. Takk fyrir heimsóknina Ómar og gangi þér vel!


Haustfrí
Haustfrí verður í skólanum dagana 29. - 30. okt. Mánudaginn 2. nóv. er starfsdagur. Njótið ykkar í haustfríinu, slappið vel af, komið endurnærð, hress og kát í skólann þriðjudaginn 3. nóv. Bestu kveðjur frá starfsfólki Gsnb


Bleikur dagur
Í gær var haldið upp á bleika daginn hjá okkur í GSnb til að sýna samstöðu og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein. Nemendur og starfsfólk tók þátt í deginum með því að mæta í bleiku.


Hvað býr í fjörunni?
Fimmtudaginn 8. október var opnuð sýning nemenda 4. bekkjar úr Grunnskóla Snæfellsbæjar í þjóðgarðsmiðstöðinni sem ber heitið „Hvað býr í fjörunni?“ og er hluti af Barnamenningarhátíð Vesturlands. Unnið var með lífríki fjörunnar en í Gsnb er mikið unnið með nærumhverfi nemenda og það nýtt sem viðfangsefni og uppspretta hugmynda. Nemendur byrjuðu á að skoða lífríki fjörunnar í Krossavík og fengu fræðslu frá landverði Snæfellsjökulsþjóðgarðsins um hvernig hægt væri að greina og


Danssýning
Í síðustu viku var danssýning allra aldursstiga í íþróttahúsinu þar sem gestum var boðið að sjá afrakstur danskennslu Jóns Péturs Úlfljótssonar í skólanum. Jón Pétur var búinn að vera í heimsókn hjá okkur í nokkur skipti í fjórar vikur og gaman að sjá hve vel tókst til.


Reykir
Í byrjun september fór 7. bekkur í Reykjaferð þar sem nemendur áttu frábærar stundir og nutu sín í botn. Skipulag búðanna var mjög gott og dagskráin fjölbreytt, þannig að allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi. Nemendur tóku þátt í ýmis konar afþreyingu, meðal annars útivist, nutu heitu náttúrulaugarinnar, tóku þátt í sundlaugarpartýi, tískukeppni og diskói, svo eitthvað sé nefnt. Nokkrir nemendur tóku þátt í tískukeppninni og sérstaklega gaman er að segja frá því að Hinrik


Samtalsdagur
Miðvikudaginn 14. október verður samtalsdagur í Grunnskóla Snæfellsbæjar þar sem nemendur, foreldrar og kennarar fara yfir ástundun, líðan og frammistöðu nemenda. Boðið verður upp á kakó og vöfflur. Hlökkum til að sjá ykkur :-)


Aðalfundur Foreldrafélags GSnb norðan heiðar
Aðalfundur Foreldrafélags GSnb norðan Heiðar var haldinn miðvikudaginn 23. september sl. Í upphafi fundar kynnti Gunnþór E. Gunnþórsson Menntastefnu Snæfellsbæjar og innleiðingu hennar. Menntastefnuna í heild sinni má nálgast á vef Snæfellsbæjar (www.snb.is), en meðfylgjandi er skjal sem sýnir efni hennar í hnotskurn. Ný stjórn Foreldrafélagsins til næstu tveggja ára skipa: Aría Jóhannesdóttir, Arkadiusz Rafal Lakomski, Berglind Long, Dagný Elísa Þorsteinsdóttir og Karitas H


Símar og snjalltæki
Ný reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum var samþykkt á Alþingi og tók gildi 1. september sl. Skólinn okkar hefur verið símalaus síðan í apríl árið 2022 og við höfum ákveðinn feril í viðbragði (ef nemandi er með síma) þannig að nemendur ættu að vera í góðri æfingu. Reglugerðin kveður hins vegar á um að símar og snjalltæki séu bönnuð í öllum ferðum á vegum skólans og í því samhengi bendi ég á að nemendur eru á vegum skólans frá því að þeir stíga upp í skólarútu












