Símar og snjalltæki
Ný reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum var samþykkt á Alþingi og tók gildi 1. september sl. Skólinn okkar hefur verið símalaus síðan í apríl árið 2022 og við höfum ákveðinn feril í viðbragði (ef nemandi er með síma) þannig að nemendur ættu að vera í góðri æfingu. Reglugerðin kveður hins vegar á um að símar og snjalltæki séu bönnuð í öllum ferðum á vegum skólans og í því samhengi bendi ég á að nemendur eru á vegum skólans frá því að þeir stíga upp í skólarútuna og þar til þeir fara úr henni í lok dags. Einnig er kveðið á um að nemendur eigi að fá tækifæri til að taka þátt í innleiðingu reglugerðarinnar og við verðum að sjálfsögðu við því. Foreldrar og forráðamenn verða upplýstir þegar innleiðingaráætlunin liggur fyrir.
Reglugerðina má nálgast á vef Stjórnarráðsins, slóðin er: https://www.stjornarradid.is/library/?itemid=eb36db6b-a214-11f1-b8a9-005056bcde1f


















Comments