

Valgreinar
Valgreinar 8.–10. bekkjar í GSnb eru farnar af stað af fullum krafti. Næstu daga ætlum við að flytja fréttir af þeim og sýna myndir af vinnu nemenda. Við litum inn til Ragnheiðar textílkennara sem býður upp á valgreinina Skart úr textíl – sjálfbærni – endurnýting. Í þessu vali hafa nemendur frjálst val í að hanna skartgripi og fylgihluti úr efnisveitu. Hér hafa margar góðar hugmyndir sprottið fram en nemendur skissa niður hugmyndir sínar á blað, gera prufur og hanna lokaafu


Svakalega lestrarkeppnin
Svakalega lestrarkeppnin fór fram dagana 15. sept. - 6. okt. Nemendur 1. - 7. bekk í GSnb tóku þátt og lásu samtals í 85.270 mín. Við óskum krökkunum til hamingju með lesturinn og að hafa aukið þannig við lestrarfærni sína. Verið dugleg að lesa áfram í vetur og minnum á að lestur er lykill að ævintýrum lífsins.


Heimsókn
Miðvikudaginn 28. október kom samfélagslögreglan í heimsókn til 1. og 2. bekkjar. Farið var yfir m.a. öryggi á leiðinni í skólann, hvort sem var gangandi, í bíl eða á hjóli. Að sjálfsögðu voru allir með umferðarreglurnar á hreinu og ætla allir krakkarnir að vera duglegir að minna hvert annað á og mömmu og pabba að vera dugleg að spenna beltin í bílum, ekki tala í síma á meðan verið er að keyra og nota hjálm þegar verið er að hjóla, bæði á reiðhjólum og hlaupahjólum. Auðvitað












