top of page

Valgreinar

3 hours ago
1 min read

Valgreinar 8.–10. bekkjar í GSnb eru farnar af stað af fullum krafti. Næstu daga ætlum við að flytja fréttir af þeim og sýna myndir af vinnu nemenda.

 

Við litum inn til Ragnheiðar textílkennara sem býður upp á valgreinina Skart úr textíl – sjálfbærni – endurnýting.


Í þessu vali hafa nemendur frjálst val í að hanna skartgripi og fylgihluti úr efnisveitu. Hér hafa margar góðar hugmyndir sprottið fram en nemendur skissa niður hugmyndir sínar á blað, gera prufur og hanna lokaafurð. Á meðan er spjallað og hlustað á góða tónlist á lágstemmdum notalegum nótum – virkilega góður andi hjá þessum flottu nemendum.



 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

​

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

​

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

​

bottom of page