Heimsókn
Miðvikudaginn 28. október kom samfélagslögreglan í heimsókn til 1. og 2. bekkjar. Farið var yfir m.a. öryggi á leiðinni í skólann, hvort sem var gangandi, í bíl eða á hjóli. Að sjálfsögðu voru allir með umferðarreglurnar á hreinu og ætla allir krakkarnir að vera duglegir að minna hvert annað á og mömmu og pabba að vera dugleg að spenna beltin í bílum, ekki tala í síma á meðan verið er að keyra og nota hjálm þegar verið er að hjóla, bæði á reiðhjólum og hlaupahjólum. Auðvitað eru allir líka rosa duglegir að líta til beggja hliða og hlusta eftir bílum þegar farið er yfir gangbraut.
Að lokum fengu allir endurskinsmerki með lögreglumerkinu að gjöf.
Við sendum lögreglunni kærar þakkir fyrir komuna og fögnum þessu samstarfi.




















Comments