top of page
2.jpg

Skólabær

 

Skólabær - Breyting á vistun
 

Ef foreldrar óska eftir tímbundum breytingum (t.d. í einn dag) á vistun barna sinna í Skólabæ þá tilkynni þeir þær til  á Sólveigar Bláfeld Agnarsdóttur (Sollu) netfangið solveig(hja)gsnb.is eða í síma 433 9922. Við getum ekki tekið gild óljós skilboð frá nemendum, þar um.

Ef foreldrar óska eftir langtíma breytingum á vistun í Skólabæ, þurfa þeir að segja samningnum upp fyrir 20. dag mánaðar svo uppsögn taki gildi 1. dag næsta mánaðar. Eyðublöð er að finna á þessu tengli 78b0ab_bd8d58993c874419a8b9186dc1e3e058.pdf (gsnb.is)​

​

Skólabær – skóladagvist

 

Skólabær er skóladagvist fyrir nemendur 1.-4. bekkjar þar sem þeir eru í gæslu eftir að skóla lýkur. Klukkan 15 er boðið upp á hressingu í Skólabæ. Forráðamenn greiða fyrir gæsluna og hressingu en val er um að hafa nemendur til kl. 15 eða kl. 16.

​

Foreldrar sækja skriflega um gæsluna og þurfa þeir að segja samningnum upp fyrir 20. dag mánaðar svo uppsögn taki gildi 1. dag næsta mánaðar. Eyðublöð er að finna á heimasíðu skólans www.gsnb.is.

​

 

Nesti

​

Þeir nemendur sem dvelja í Skólabæ gefst kostur á að taka með sér nesti, óski þeir þess en þeir fá ávexti um kl 15:00, jafnframt hafa þeir greiðan aðgang að vatni og mjólk sem er í boði með nestinu.

​

Ætlast er til að nemendur komi með hollt nesti sem búið er vel um.

​

Mælst er til þess að börn séu nestuð í samræmi við ráðleggingar um næringu frá Landlæknisembætti, sjá hér fyrir neðan.

​

Mælst er til þess að börn séu ávallt með grænmeti og/eða ávexti í nesti. Góður kostur fyrir þau sem þurfa á meiri næringu að halda er samloka úr grófu brauði eða lítið sætt morgunkorn að auki (þá er hægt að nýta mjólkuráskrift til að setja mjólk út á).

​

Æskilegt er að takmarka jógúrt með viðbættum sykri og/eða sætuefnum við þá daga sem frjálst nesti er auglýst.

​

​

 

Ráðleggingar um mataræði á heimasíðu landlæknisembættisins.

 

 

Upplýsingar um sykurmagn í vörum á heimasíðu landlæknisembættisins - https://www.heilsuvera.is/hollara-val

​

Grunnskóli Snæfellsbæjar

​

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

​

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

​

bottom of page