top of page

PALS – fræðsla í GSnb

15 hours ago
1 min read

Þann 12. nóvember sl. fengum við góða gesti í heimsókn í Ólafsvík þegar þær Sólveig Edda Ingvarsdóttir, deildarstjóri læsis í Hólabrekkuskóla, og Snædís Vagnsdóttir, kennari í Hólabrekkuskóla, héldu fræðslu um lestrarkennsluaðferðina PALS fyrir umsjónarkennara og starfsfólk stoðþjónustu í 1.–7. bekk.


Skammstöfunin PALS stendur fyrir Pör að læra saman, en um er að ræða rannsóknamiðaða kennsluaðferð sem byggir á markvissri jafningjakennslu og virkri þátttöku allra nemenda. Uppbygging tímanna er bæði skýr og skemmtileg. Nemendur vinna saman í pörum þar sem þeir skiptast á að lesa, hrósa og leiðbeina hvor öðrum undir handleiðslu kennara.


Á yngsta stigi er unnið með hljóð, stafi og orðalestur í gegnum fjölbreytta leiki, en hjá eldri nemendum færist áherslan yfir í lesfimi, endursögn og lesskilning. Með þessu fyrirkomulagi fá allir nemendur mikla æfingu í lestri um leið og þeir efla samvinnu og félagsfærni.

 

Við þökkum þeim Sólveigu Eddu og Snædísi fyrir fræðsluna.



 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

​

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

​

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

​

bottom of page