Heimurinn heima
Við fengum tvo hönnuði frá Hönnunarsafni Íslands í heimsókn til okkar í liðinni viku, þær Auði Ösp Gísladóttur og Kristínu Maríu Sigþórsdóttur. Viðburðurinn er í tengslum við Barnamenningarhátíð Vesturlands.
Auður Ösp og Kristín María eru höfundar verkefnisins HEIMURINN HEIMA sem er innanhússarkitektúrsmiðja. Smiðjan hefur verið í boði í 3 ár og hefur slegið í gegn hjá þúsundum barna á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og þessa dagana er börnum á Vesturlandi boðið að taka þátt.
Boðið var upp á smiðjur fyrir nemendur í 5. og 6. bekk. Skemmst er frá því að segja að nemendur nutu sín mjög vel, voru hugmyndaríkir og framkvæmdaglaðir. Hvor hópur hannaði sitt hús og tók sameiginlega ákvörðun um hver ætti heima í húsinu, hver áhugamál viðkomandi væru og hvernig aðstæður viðkomandi byggi við.





















Comments