top of page

Niðurstöður nemendaþings, 6. nóvember 2026

15 hours ago
2 min read

Nemendaráð Grunnskóla Snæfellsbæjar efndi til nemendaþings í 7.–10. bekk þann 6. nóvember sl. í tilefni þess að reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskólum og á frístundaheimilum tók gildi 1. september 2026. Tæplega 100 nemendur úr 7.–10. bekk komu saman og ræddu ýmis mál í hópum.


Reglugerðin var borin saman við símareglur í GSnb sem hafa verið í gildi síðan 1. apríl 2022.


Að lokinni vinnu nemenda og kynningu þeirra á niðurstöðum héldu Vilborg Lilja Stefánsdóttir, skólastjóri GSnb, og Kristinn Jónasson bæjarstjóri stutta tölu og við lukum þessari vinnu með pizzuveislu frá Sjoppunni Ólafsvík í boði nemendaráðs.


Helstu niðurstöður af hópavinnu nemenda eru þessar:

• Nemendur upplifa litla breytingu með tilkomu reglugerðarinnar, enda vanir því að vera án símans.

• Nemendur upplifa meiri einbeitingu í tímum og heilinn fær pásu frá áreiti

• Nemendur eiga í betri samskiptum hver við annan,

• Í frímínútum stunda nemendur alls kyns afþreyingu; þeir eru inni á bókasafni í notalegu umhverfi, þeir spila borðtennis, tefla skák, púsla, lita, myndir, spila og spjalla. Þá fara nemendur einnig út í fótbolta og körfubolta.

• Helstu atriðin sem nemendur vilja bæta við í starfið og aðstöðu eru: fleiri sófar, fleiri stólar og setustofa, leyfi til að nota íþróttahús í frímínútum, bæta við aðstöðu til að fara í pool, bæta við borðtennisborði og skoða möguleikann á að stækka bókasafnið.

• Þá nefndu nemendur að þeir vildu sjá fleiri viðburði á skólatíma, ákall um t.d. aukna fræðslu af ýmsu tagi og að nemendaráð skólans kæmi með hugmyndir að viðburðum.

• Nemendur upplifa almennt að símareglur og verklagið og afleiðingar þeirra séu góðar. Þeir vilja gjarnan að nemendaþing séu haldin oftar og að hlustað sé á þá.


Myndir Alfons Finnsson




 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

​

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

​

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

​

bottom of page