top of page

Smíðaval

48 minutes ago
1 min read

Í þessu vali eru nemendur að vinna að gerð boga og örva. Að sögn Harðar smíðakennara var meiningin að gera armana úr gömlum skíðum en þau fengust því miður ekki.

“Verkefnið felst í að nemendur byrja á að gera handfang sem fylgir ákveðnum reglum. Númer eitt er að það passi vel til eiganda þess og notum við sandpappír til að gera það sem flottast og þægilegast fyrir grip. Handföngin eru síðan lökkuð. Því næst gerum við arma bogans, sem eru sagaðir og heflaðir út í beikitré; þykkleiki fer eftir styrk bogans. Armarnir eru síðan límdir og festir á handfangið með trétöppum. Boginn er síðan stilltur af þannig að báðir armar togi jafnt og er það gert með því að pússa og þynna þann arm sem er sterkari. Í lokin gera nemendur örvar úr tré og fjöðrum.”



 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

​

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

​

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

​

bottom of page