Hvað býr í fjörunni?
Fimmtudaginn 8. október var opnuð sýning nemenda 4. bekkjar úr Grunnskóla Snæfellsbæjar í þjóðgarðsmiðstöðinni sem ber heitið „Hvað býr í fjörunni?“ og er hluti af Barnamenningarhátíð Vesturlands. Unnið var með lífríki fjörunnar en í Gsnb er mikið unnið með nærumhverfi nemenda og það nýtt sem viðfangsefni og uppspretta hugmynda.
Nemendur byrjuðu á að skoða lífríki fjörunnar í Krossavík og fengu fræðslu frá landverði Snæfellsjökulsþjóðgarðsins um hvernig hægt væri að greina og þekkja kuðunga og skeljar en í myndmenntastofunni er ágætt safn af kuðungum og skeljum sem nemendur hafa greiðan aðgang að ásamt ýmsum bókum um lífverur sem búa í fjörunni og sjónum. Við skoðuðum líka efni á netinu tengt verkefninu.
Nemendum var skipt í hópa, þrjú í hverjum hóp og vinnan hófst á því að þau gerðu hugarkort um hvað heillaði þau mest við fjöruna. Síðan var gerð vinnuteikning þar sem þau útfærðu hugmyndirnar sínar. Hugmyndirnar voru síðan unnar á léreft með aðferðum textíls og myndlistar og nýttu þau sér efnisbúta, textílliti og garn til að teikna og sauma út undir leiðsögn Ragnheiðar Guðmundsdóttur textílkennara og Ingu Harðardóttur myndmenntakennara.





















Comments