Sögusamkeppni
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu komu nemendur og starfsfólk í 1.- 4. bekk saman á sal skólans á Hellissandi. Sungin voru nokkur lög og afhent verðlaun fyrir sögusamkeppni 1.- 4. bekkjar sem er árlegur viðburður.
Valin er ein saga úr hverjum árgangi og hlýtur höfundur sögunnar bókagjöf í verðlaun.
Eftirtaldir nemendur áttu vinningssögur að þessu sinni:
1. bekkur, Urður Eir Þiðriksdóttir fyrir söguna Gylfi og Rúmý.
2. bekkur, Eva Arnaldsdóttir fyrir söguna Ljónið sem vildi leika.
3. bekkur, Hildur Líf Emanúelsdóttir fyrir söguna Ása og Klara
4. bekkur, Apríl Ýr Jóhannsdóttir fyrir söguna Feluleikur.
Höfundar munu lesa sögurnar í sögustund á sal í desember.
Innilegar hamingjuóskir kæru nemendur.
Á myndinni eru, frá vinstri: Urður Eir, Eva, Hildur Líf og Apríl Ýr.


















Comments