Reykir
Í byrjun september fór 7. bekkur í Reykjaferð þar sem nemendur áttu frábærar stundir og nutu sín í botn. Skipulag búðanna var mjög gott og dagskráin fjölbreytt, þannig að allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi. Nemendur tóku þátt í ýmis konar afþreyingu, meðal annars útivist, nutu heitu náttúrulaugarinnar, tóku þátt í sundlaugarpartýi, tískukeppni og diskói, svo eitthvað sé nefnt.
Nokkrir nemendur tóku þátt í tískukeppninni og sérstaklega gaman er að segja frá því að Hinrik Búi, nemandi í 7. bekk, bar sigur úr býtum. Margir komu að því að skapa módelið hans og lögðu sitt af mörkum við undirbúninginn. Þau voru öll mjög ánægð með útkomuna og gaman var að sjá hvað verkefnið sameinaði hópinn.
Reykjaferðin var í alla staði vel heppnuð og greinilegt var að nemendur nutu sín. Þeir kynntust nýju fólki, tóku þátt í fjölbreyttum verkefnum og upplifðu margt skemmtilegt saman. Ferðin gaf þeim dýrmætar minningar sem munu eflaust fylgja þeim um ókomna tíð❤️



















Comments