Stærðfræðikeppni Vesturlands
- 10 hours ago
- 1 min read
Nemendur á unglingastigi GSnb tóku þátt í árlegri stærðfræðikeppni grunnskólanna á Vesturlandi þann 17. apríl síðastliðinn. Keppnin fór fram í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi þar sem fjölmargir nemendur af Vesturlandi komu saman og spreyttu sig á krefjandi stærðfræðiþrautum.
Verðlaunaafhending fór fram laugardaginn 9. maí. Kristján Már Traustason í 10. bekk var í 2. sæti keppninnar og Brajan Pienkowski 10. bekk í 4. sæti. Frábær árangur hjá strákunum og erum við stolt af þessum árangri þeirra og óskum þeim innilega til hamingju.


















Comments