top of page

Lestur er lykill að ævintýrum lífsins

  • 6 hours ago
  • 1 min read

Í vetur voru lögð fyrir þrjú lesfimipróf í öllum bekkjum skólans. Undanfarin ár höfum við séð marga nemendur koma í skólann eftir sumarfrí sem hafa misst niður lestrarfærni sem þeir náðu að vori. Það getur tekið nemendur langan tíma að vinna upp lestrarfærni og því minnum við á mikilvægi sumarlesturs.


Skólinn er í samstarfi við Bókasafn Snæfellsbæjar og hvetjum við nemendur til að fara á bókasafnið og velja sér bækur sem þá langar að lesa og skrá í lestrarappið Læsir undir sumarlestur.


Í haust verða veitt verðlaun fyrir sumarlestur, veitt verða verðlaun í tveimur flokkum.

2 - 4. bekkur - einstaklingsverðlaun og bekkjarverðlaun

5. - 7. bekkur - einstaklingsverðlaun og bekkjarverðlaun


Lesum öll í sumar :-)



 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

bottom of page