top of page

Símalaus skóli

Frá og með 1. apríl verður skólinn símalaus - þetta er ekki aprílgabb.


Við óskum eftir góðu samstarfi við foreldra og viljum að símarnir séu geymdir heima.


Við kynntum þessa hugmynd strax í haust en vegna Covid fannst okkur ekki ráðlegt að fara í þetta bann fyrr. Í haust fengum við hugmyndir frá nemendum um hvernig mætti bæta aðstöðu nemenda í frímínútum. Í framhaldinu af þeirri umræðu voru keyptir nýir sófar, töflum komið fyrir á göngum skólans, spilum var fjölgað og nemendur gátu farið í valda leiki í íþróttahúsinu. Við munum halda áfram hlusta eftir óskum nemenda og reyna verða við þeim.

Aðalástæða þess að símarnir eru ekki leyfðir er sú að þeir valda truflun, bæði í kennslustundum og í hinum frjálsa tíma (frímínútum). Einbeiting nemenda þverr og síminn á hug þeirra allan.

Viljum vekja athygli á nokkrum staðreyndum:

  • Mikil notkun getur haft áhrif á andlega sem og líkamlega heilsu barna

  • Notkun samfélagsmiðla hefur oft skilað sér í miklum kvíða og streitu. Unglingarnir bera sig saman við aðra á samfélagsmiðlum og upplifa sig minna virði ef aðrir virðast betri í einhverju sem hefur áhrif á líf þeirra.

  • Ungmenni verða brothættari, taka síður áhættu, verða síður frjálsleg, fá lægri einkunnir og fara sjaldnar á stefnumót af ótta við að mistakast eða vera gagnrýnd.

  • Einelti á Netinu: Vegna nafnleyndarinnar sem samfélagsmiðlar bjóða upp á aukast líkur og hætta á ofbeldi, þar með talið kynferðisofbeldi, og geta ógnir valdið djúpum tilfinningalegum skaða. Það getur haft langvarandi áhrif sem fylgir einstaklingum til fullorðinsára.

  • Notkun samfélagsmiðla hefur aukist samhliða verri andlegri líðan ungmenna

  • 55% einstaklinga upplifa slæma sjálfsmynd eftir notkun á samfélagsmiðlum

  • Það hefur sýnt sig að börnin hafa ekki öll vald á að fara eftir skólareglum við notkun á símanum. Þar er sérstaklega átt við að fylgja banni við myndatökum í skóla og sendingum (birtingu) á efni sem tekið er upp þar á netmiðla, án samþykkis samnemenda eða starfsfólks skólans.

Í ónefndum skóla var unnin könnun í 7. bekk hve margar tilkynningar (notification) nemendur fengu og kom í ljós að þær voru að meðaltali 100 yfir daginn og sá sem fékk flestar fékk 467 tilkynningar eða um 20 á klukkustund! Þessar tilkynningar eiga hug nemenda og trufla daglegt líf þeirra.


Það er von okkar að eiga gott samstarf við foreldra og nemendur um þetta bann með velferð nemenda að leiðarljósi.





​Nýjar fréttir
Eldri fréttir
bottom of page