top of page

Mislitir sokkar


Mislitir sokkar á morgun föstudaginn 19. mars í tilefni Downs dagsins.

Sunnudaginn 21. mars er alþjóðlegi Downs dagurinn. Markmið dagsins er að auka vitund og minnka aðgreiningu. Dagsetningin er táknræn að því leyti að hún vísar til þess að Downs-heilkenni orsakast af auka litning í litningi 21, þ.e. 3 eintök af litningi 21 – 21.03.

Við í Grunnskóla Snæfellsbæjar erum stolt af því að í skólanum er nemandi með Downs-heilkenni og við ætlum að halda upp á daginn á morgun, föstudaginn 19. mars. Við mælumst til þess að bæði nemendur og starfsfólk mæti í mislitum sokkum þann dag og fögnum fjölbreytileikanum á táknrænan hátt.



​Nýjar fréttir
Eldri fréttir
bottom of page