„Hvað er með ásum“ – sýning 3.-4. bekkjar í Eddu
- hugrune
- 6 days ago
- 1 min read
Föstudaginn 23. maí opnaði sýning í Eddu, húsnæði Árnastofnunar, á verkum nemenda sem tóku þátt í verkefninu Hvað er með ásum skólaárið 2024 - 2025. Sýningin er í safnkennslustofunni á 1. hæð og stendur yfir í sumar, eða fram til 1. ágúst.
Auk nemenda úr 3.-4. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar, sem sýna verk sem þau unnu um heimana níu úr norrænni goðafræðinni, tók Nesskóli í Neskaupstað þátt og sýnir leir- og tréverk nemenda úr 5. bekk.
Nemendur í Grunnskóla Hólmavíkur, Finnbogastaðaskóla og Grunnskóla Drangsness settu upp leikverkið Goðdalir á heimaslóðum en sýnir upptökur, ásamt hluta af leikmyndinni, og búninga sem nemendur saumuðu fyrir leiksýninguna og tískumyndir sem nemendur tóku af þeim.
Opið er í safnkennslustofunni á afgreiðslutíma sýningarinnar Heimur í orðum sem er opin alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hægt er að hafa samband við Mörtu safnkennara á netfangið mgj@hi.is. Það er tilvalið að skoða sýninguna Heimur í orðum í leiðinni en á henni gefst fólki kostur á að sjá íslensku handriðin sem geyma goðsagnirnar sem verkefnið Hvað er með ásum byggir á og annað sem tengist þeim.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (Edda) er staðsett á Arngrímsgötu 5, 107 Reykjavík.


Comments