top of page

Grænfáni

  • Writer: hugrune
    hugrune
  • 14 minutes ago
  • 1 min read

Á þessu skólaári var það aðalverkefnið hjá umhverfisnefnd skólans, norðan Heiðar að semja umhverfissáttmála. Áður en það var gert voru þemu valin og staða innan þeirra metin með matslistum frá Umhverfisstofnun. Ákveðið var að velja tvö þemu, þ.e. átthagafræði annars vegar og neyslu og úrgang hins vegar. Nemendur í 1.-10. bekk önnuðust matið. Heilt yfir kom skólinn vel út úr matinu en í nokkrum þáttum þurfum við að standa okkur betur og tekur umhverfissáttmálinn til þeirra þátta.


Við vinnum að því að:

  • Halda áfram því góða starfi sem unnið er í skólanum.

  • Fræða nemendur um mikilvægi þess að minnka úrgang og hvað verður um úrganginn sem fellur til í skólanum.

  • Minnka úrgang (m.a. matarafganga) og flokka það sem til fellur.

  • Nemendur gangi vel um sitt nánasta umhverfi, tíni upp rusl sem þeir rekast á og flokki.

  • Upplýsa nemendur um námskrána í átthagafræði og endurskoða kaflann í átthagafræði um ferðir í samráði við nemendur.



 
 
 

コメント


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

bottom of page