top of page

Sögugerð

4 minutes ago
1 min read

Síðan skólinn byrjaði hafa nemendur 4. bekkjar unnið með sögugerð. Þau kynntu sér Herramannabækurnar eftir Roger Hargreaves. Þau skoðuðu innihald textans, myndirnar og sérstaklega heiti persónanna sem endurspeglast alltaf í sögunum. Síðan var komið að þeim að láta reyna á að búa til sína eigin sögu um Herramennina.

Þau sköpuðu persónu og skrifuðu sögu sem passaði við heiti persónunnar. Þau teiknuðu sína persónu og héldu sig við stíl Roger Hargreaves. Sagan var síðan sett inn í bók sem er í sömu stærð og Herramannabækurnar og þau myndskreyttu með sínum teikningum.

Í lokin lásu þau bækurnar upp fyrir samnemendur og fengu að lesa fyrir 1., 2. og 3. bekk.




 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

bottom of page