top of page

Skólabyrjun - góðar venjur

Updated: Sep 1, 2023

Nú er vika liðin af þessu skólaári og fer starfið mjög vel af stað, nemendur mæta vel stemmdir og starfsfólk jákvætt og lausnamiðað.


Í næstu viku hefjast kynningarfundir. Nú er hver bekkur sér og umsjónarkennarar boða fundina í sínum umsjónarhópum. Þetta eru mikilvægir fundir og því leggjum við áherslu á að foreldrar mæti. Á fundinum er farið yfir skipulag vetrarins, viðfangsefni í hverjum bekk kynnt og málefni hvers umsjónarhóps rædd. Ef foreldrar vilja ræða málefni sem varða skipulag eða stjórnun skólans þá er farsælast að koma þeim ábendingum til skólastjóra beint, helst að panta tíma og ræða málin.


Við viljum hvetja nemendur til að koma sér upp heilbrigðum venjum og velja sér jákvætt viðhorf, axla ábyrgð á eigin líðan. Með heilbrigðum venjum erum við að benda á þætti eins og að: sinna heimanámi, koma sér upp góðum svefnvenjum, borða hollt, hreyfa sig daglega, hafa stjórn á skjátíma sínum, rækta sambandið við vini og vandamenn, koma sér upp heilbrigðum tómstundum, fíflast og hafa gaman af lífinu.


Hér eru nokkur ráð til foreldra sem gott er að fylgja til að minnka álag og ýta undir góða líðan barna:


Svefn

Börn þurfa 9-10 tíma svefn á hverri nóttu því þurfa þau að fara snemma í háttinn.


Næring

Morgunmaturinn er mikilvægasta máltíð dagsins því skaltu leggja áherslu á að barnið borði næringaríkan morgunverð áður en það fer í skólann.


Rútína

Til að morgunstundin sé róleg og afslöppuð er gott að venja sig á að taka til skóladótið að kvöldi og finna til fötin. Róleg morgunstund minnkar álag og kvíða og ýtir undir að barnið sé í jafnvægi þegar það mætir í skólann. Mörgum reynist vel að hafa sjónrænan lista til að fylgja og merkja við svo ekkert gleymist heima.


Jákvæðni

Talaðu vel um námið, skólann og starfsfólk skólans. Ræddu við barnið um tilfinningar sínar varðandi skólann. Ef barnið finnur fyrir áhyggjum skaltu ræða um áhyggjur þess og hjálpa því að finna lausnir á vandanum. Einnig er gott að kenna barninu að anda djúpt nokkrum sinnum til að minnka kvíðahnútinn í maganum. Ef barnið hefur tilhneigingu til að vera neikvætt þarftu að hjálpa því að velja frekar jákvæðar hugsanir og kenna því að hugsa og tala fallega til sín.


Styrkleikar

Börn þurfa tíma fyrir leik og hreyfingu á hverjum degi. Skjánotkun ætti því að vera í lágmarki og alls ekki á kostnað hreyfingar, leiks og lærdóms. Gott mótvægi við snjalltækjanotkun er að hvetja barnið til að nota einn af styrkleikum sínum í 30 mínútur (t.d. að teikna, halda bolta á lofti, leika á hljóðfæri eða lesa) á móti 30 mínútum í snjalltækinu.






​Nýjar fréttir
Eldri fréttir
bottom of page