top of page

Geðlestin í heimsókn

Geðlestin heimsækir nemendur í 7.-10. bekk mánudaginn 1. nóvember. Vekjum sérstaka athygli á heimasíðu verkefnisins sem opna fljótlega á slóðinni www.gedlestin.is

Geðlestin er geðfræðsla fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla sem byggir á þeirri staðreynd að við erum öll með geð rétt eins og við erum með hjarta. Á lífsleiðinni er mjög líklegt að við lendum í mótvind og þurfum jafnvel að leita okkur aðstoðar. Öflug geðrækt frá unga aldri út lífið er besta ráðið til að takast á við þær áskoranir sem lífið færir okkur. Geðlestin er samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717.

Geðlestinni er ætlað að vekja athygli á mikilvægi geðheilsu og verndandi þáttum hennar. Hver heimsókn fer þannig fram að fyrst segir ungur einstaklingur frá sinni persónulegu reynslu af geðrænum áskorunum, þá er sýnt leikið myndband, eftir það umræður og í lokin er stutt tónlistaratriði. Samtals tekur fræðslan um 50 mínútur.

Markmiðið með Geðlestinni er að ræða við ungt fólk um geðheilsu og hvernig best sé að rækta hana og vernda. Lífið býður upp á allskonar áskoranir og stundum þurfum við að leita okkur aðstoðar við verkefni lífsins. Það er eðlilegasti hlutur í heimi að biðja um hjálp. Nemendur eru hvattir til þess að tjá tilfinningar sínar, spyrja spurninga og ræða við foreldra/aðstandendur eða kennara um það sem gengur á í amstri dagsins.

Það er mikilvægt að læra að stundum er lífið leiðinlegt og erfitt og það þurfi ekki alltaf að þýða eitthvað alvarlegt eða slæmt. Mótvindur breytist í meðvind og engin brekka er endalaus.

Það á að vera jafn eðlilegt að huga að geðheilsu sinni eins og líkamlegri heilsu. Það er hægt að gera með því að koma sér upp heilbrigðum venjum, líkt og að iðka þakklæti, eiga sér áhugamál, hreyfa sig, borða hollt, fá nægan svefn, treysta, eiga góða vini, rækta með sér seiglu og þrautseigju, vera umburðarlynd(ur), hjálpa öðrum, sýna tillitssemi, tjá sig svo fátt eitt sé nefnt.

Geðlestin hefst 1. nóvember með hringferð um landið og er markmiðið að heimsækja allar unglingadeildir grunnskóla landsins auk framhaldsskóla á skólaárinu 2021-2022.





​Nýjar fréttir
Eldri fréttir
bottom of page