top of page

Til hamingju öll

Updated: Nov 11, 2022

Íslensku menntaverðlaunin 2022 voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þann 2. nóvember.

Í flokknum „framúrskarandi þróunarverkefni“ var verkefnið Átthagafræði í Grunnskóla Snæfellsbæjar eitt þeirra sem tilnefnt var og hlaut að lokum þann heiður að vera útvalið til verðlaunanna.

Hilmar Már Arason, skólastjóri veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd skólans.


Átthagafræðin snýr að því að kynna nemendum átthaga sína á markvissan hátt, það er að þeir öðlist þekkingu og skilning á náttúru, sögu og mannlífi í nærumhverfi sínu.

Nemendur geta nýtt menntun sína og reynslu í átthagafræði í framhaldsnámi og í lífinu almennt með því að yfirfæra þekkingu sína og skilning á nærumhverfi á nýtt umhverfi og ný viðfangsefni. Góður skilningur á átthögum gefur því gott veganesti inn í framtíðina.

Unnið er eftir námskrá sem átthagafræðiteymi innan skólans hefur haldið utan um í samvinnu við kennara. Í námskránni er viðfangsefnum skipað niður á árganga með það að markmiði að þegar nemendur útskrifast úr Grunnskóla Snæfellsbæjar hafi þeir kynnst nærumhverfi sínu í víðu samhengi og upplifað það.

Sem dæmi um verkefni má nefna að nemendur fræðast um Snæfellsjökul á fjölbreyttan hátt svo sem um jarðfræði hans, þjóðsögur sem tengjast honum og gildi hans fyrir byggðarlagið.

Í lok skólagöngu fara nemendur síðan í ferð á Jökulinn.

Skólinn á einnig í mjög góðu samstarfi við samfélagið, bæði foreldra og einstaklinga sem koma inn í skólann og fræða nemendur sem og fyrirtæki, stofnanir, bæjaryfirvöld og félagasamtök sem bjóða í fræðslu- og vettvangsferðir.

Aðspurður sagði Hilmar Már Arason skólastjóri að þetta væri mikill heiður fyrir skólann– „Já, og í raun er það allt samfélagið í Snæfellsbæ sem hlýtur þessa viðurkenningu fyrir þetta frábæra þróunarverkefni.“ Sagði hann að skólinn vonaðist jafnframt til, með verkefni sem þessu, að geta “dregið fram það jákvæða í samfélaginu okkar og opnað augu nemenda fyrir þeim tækifærum sem Snæfellsnesið hefur upp á að bjóða, bæði í nútíð og þegar til framtíðar er litið“.






​Nýjar fréttir
Eldri fréttir
bottom of page