top of page

Sumarlestur 2022

Grunnskóli Snæfellsbæjar stóð fyrir sumarlestri í sjötta sinn í sumar. Markmiðið með sumarlestri er að hvetja nemendur til lesturs yfir sumartímann til að viðhalda þeirri færni sem þeir hafa náð í lestri eftir skólaárið. Nemendur voru hvattir til að velja sér fjölbreytt lestrarefni sem höfðaði til áhugasviðs þeirra.

Þátttakan var heldur minni í ár en þó greinilegt að margir höfðu lagt sig fram við lesturinn í sumar.

Verðlaunin að þessu sinni voru 2 leikhúsmiðar í Borgarleikhúsið þar sem nemendur geta valið um sýningu og boðið einhverjum með sér.

Dregin voru út nöfn nemenda í tveimur aldurshópum í 2.-5. bekk og 6.-9. bekk.

Eftirfarandi nemendur hlutu verðlaun að þessu sinni:


Jakub Kwiatkowski 4.b.

Embla Eik Rögnvaldsdóttir 5.b.

Alma Begic 7.b.

Sigurður Pétur Jónsson 7.b.


Um leið og við óskum þeim til hamingju viljum við benda á mikilvægi lesturs og hvetjum nemendur til að vera duglegir að lesa í vetur.



​Nýjar fréttir
Eldri fréttir
bottom of page