Barnaheill og Geðhjálp ferðast um landið
15 minutes ago
1 min read
10. bekkur fór í upphafi vikunnar í Grundarfjörð og tók ásamt nemendum úr Grundarfirði og Stykkishólmi þátt í umræðum á vegum Barnaheilla og Geðhjálpar. Umræðuefnin voru um líðan og veruleika ungmenna og áhersla lögð á samskipti, tengsl og líðan. Þegar vinnu lauk var nemendum boðið í pizzuveislu.
Um kvöldið var fundur í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þar sem niðurstöður nemenda voru kynntar fyrir fullorðnum og lauk fundinum með tónleikum Unnsteins Manuels.


















Comments