top of page

Grænfáninn í Grunnskóla Snæfellsbæjar


Grunnskóli Snæfellsbæjar, norðan Heiðar sótti um Grænfánan í sjöunda sinn nú í mars. Skólar sem eru þátttakendur í verkefninu þurfa að sækja um fána á tveggja ára fresti. Þeir gangast þá undir ákveðið mat á stöðu umhverfismála í skólanum áður en þeir fá fánann afhendan. Síðustu tvö ár hafa starfsstöðvarnar á norðanverðu Nesinu unnið með þemunum átthagar og landslag ásamt lýðheilsu. Markmiðin sem umhverfisteymið setti sér voru að: Kynnast heimabyggð okkar betur, efla umhverfisvitund alls skólasamfélagsins, efla heilsusamlegan og umhverfisvænan lífsstíl, bæta umhverfi okkar, skólans og nánasta umhverfi hans, flokka og senda í endurvinnslu og endurnýta. Var það mat úttektaraðila að:

„Það er greinilegt að í Grunnskóla Snæfellsbæjar fer fram metnaðarfullt og skapandi starf, þið hafið náð öllum markmiðum ykkar með glæsibrag.“

Jafnframt því að velja sér þemu og setja sér markmið þá þurfa skólar Á grænni grein að sýna fram á að þeir hafi stigið „skrefin sjö“. Okkar skóli fór þá nýstárlegu leið að setja upp heimasíðu þar sem verkefninu er vel útlistað, þemu, markmið tilgreind og skrefin sjö útlistuð. Hægt er að nálgast heimasíðuna á slóðinni https://sites.google.com/gsnbskoli.is/graenfanigsnb/forsíða

Að lokum segir í skýrslu úttektaraðilana að:

„Skólinn hefur staðið sig mjög vel í verkefninu í gegnum árin og er alls ekki verið að slá slöku við. Þið hafið unnið skrefin sjö á metnaðarfullan og vandaðan hátt. Það verður mjög spennandi að fylgjast með ykkur vinna að nýju þemunum sem þið hafið valið.

Á heildina litið er starfið mjög flott og skólinn til stakrar fyrirmyndar í verkefninu!“

Allar starfstöðvar skólans hafa verið þátttakendur í Grænfánaverkefninu til fjölda ára. Þann 24. nóvember flögguðu nemendur og starfsfólk Grunnskóla Snæfellsbæjar, Lýsuhólsskóla, sínum áttunda Grænfána en skólinn hefur verið virkur þátttakandi í verkefninu Skólar á grænni grein frá því að til þess var stofnað á Íslandi árið 2001. Starfsstöðvar skólans hafa þá allar fengið staðfestingu á góðri menntun og stöðu umhverfismála í skólanum sem við getum verið stolt af.

​Nýjar fréttir
Eldri fréttir
bottom of page