top of page

Viskan 2018

  • Writer: hugrune
    hugrune
  • Feb 7, 2019
  • 1 min read

Nú í vetur hafa nemendur á unglingastigi tekið þátt í spurningakeppni í skólanum sem fékk nafnið Viskan. Fyrirkomulag keppninnar er svipað og í Útsvari og nemendum því blandað saman í lið, voru þrír og þrír í liði. Krakkarnir stóðu sig öll mjög vel og var keppt til úrslita nú eftir áramótin. Sigurvegarar í Viskunni 2018 voru þau Hreinn Ingi Halldórsson í 9. bekk, Eir Fannarsdóttir í 10. bekk og Benedikt Gunnarsson í 10. bekk. Sigurliðið fékk Viskuna afhenta en Viskan er farandbikar og verður hann veittur á hverju ári ásamt því að nöfn sigurvegaranna verða merkt á hann. Að auki fengu sigurvegararnir gjafabréf fyrir pizzu og kók á Skerinu.

 
 
 

Comentários


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

bottom of page