top of page

Lionsmenn færðu grunnskólanum hefilbekki


Í síðustu viku afhenti Lionsklúbbur Ólafsvíkur, Grunnskóla Snæfellsbæjar formlega að gjöf sex hefilbekki sem klúbburinn gaf skólanum fyrr á þessu ári. Hefilbekkirnir munu nýtast skólanum vel og eru nemendur byrjaðir að nota þá. Í sumar var aðstaða til smíðakennslu í Grunnskóla Snæfellsbæjar stórlega bætt. Kennslurýmið var endurskipulagt, málað og keyptir nýir hefilbekkir og eru þeir tólf talsins, en eins og áður segir gaf Lionsklúbbur Ólafsvíkur helming þeirra.EndFragment

​Nýjar fréttir
Eldri fréttir
bottom of page