top of page

1.bekkur átthagafræði


Í dag fóru nemendur 1. bekkjar í Tröð. Þar nýttum við góða veðrið til að fara í leiki og fræðast um helstu trjátegundir sem eru í skógarlundinum. Nemendur hafa í allan vetur verið í átthagafræði og lært um helsta nágrenni og unnið verkefni því tengdu. Fræðslan í dag um trén og skógarlundinn er einmitt hluti af átthagafræðinni og frábært að sjá hvað nemendur hafa verið fróðleiksfúsir í allan vetur. Að lokum tókum við vormynd af trénu okkar sem við höfum fylgst með frá skólabyrjun sl. haust. Frábær dagur og greinilegt að góða veðrið fer vel í nemendur og starfsfólk.

​Nýjar fréttir
Eldri fréttir
bottom of page