Upplestrarkeppni 7.bekkjar
- 5 hours ago
- 1 min read
Upplestrarkeppni 7. bekkjar Grunnskóla Snæfellsbæjar fór fram í sal skólans í Ólafsvík þriðjudaginn 24. febrúar. Nemendur lásu texta úr bókinni „Ertu Guð, afi?“ eftir Þorgrím Þráinsson og ljóð að eigin vali. Þeir stóðu sig einstaklega vel. Dómarar voru Guðríður Þórðardóttir, Sigurbjörg Jóhannesdóttir og Þiðrik Örn Viðarsson. Þeir nemendur sem valdir voru til að taka þátt í lokahátíð keppninnar á Snæfellsnesi sem fram fer í Ólafsvíkurkirkju fimmtudaginn 5. mars eru Carmen Bylgja Arnarsdóttir, Freyja Hafrún Hall Valdimarsdóttir og Víglundur Orri Heimisson. Auk þess var Kristófer Óskarsson valinn sem varamaður liðsins.



















Comments