top of page

Norðrið: sýning 5.bekkjar í Norræna húsinu

  • Writer: hugrune
    hugrune
  • 2 days ago
  • 1 min read

Nemendur úr 5.bekk eiga verk á sýningunni Norðrið í Norræna húsinu ásamt nemendum frá Höfn í Hornafirði en báðir hóparnir eiga það sameiginlegt að búa í nágrenni jökla. Sýningin er hluti af stærri sýningu Gárur umbreytinar á Norðurslóðum en sú sýningin sameinar listafólk og vísindafólk í rannsókn á þeim umbreytingum sem nú eiga sér stað á norðurslóðum. Sýningin skoðar áhrif loftslagsbreytinga á snjó, ís og jökullandslag og hvetur gesti til að íhuga samband mannsins við náttúruna og menningarlegt mikilvægi norðursins.


Í tengslum við sýninguna var haldið málþing, Listkennsla fyrir loftslagið. Þar komu saman sjónarhorn á listkennslu og loftslagsvitund og var Inga Harðardóttir myndmenntakennari með erindi á því sem kallaðist Samtal við Snæfellsjökul: Listkennsla í Snæfellsbæ þar sem fjallað var um hvernig unnið er með jökla og loftslagbreytingar í listkennslu.


Sýningunum lýkur 24.apríl en meðan á henni stendur er hægt er að fá bæklina sem leiðir gesti í gegnum sýninguna. Bæklingurinn inniheldur stutta fræðslutexta ásamt spurningum og vangaveltum sem hægt er að pæla í saman og er tilvalið fyrir fjölskyldur að eiga saman góða stund.


Skipuleggjendur voru Ásthildur B. Jónsdóttir og Hanna Ólafsdóttir, samstarfsaðilar: FÍMK, Listaháskóli Íslands, Menntavísindasvið HÍ og ASAD.


 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

bottom of page