Nemendur í GSnb í 5.-7. sæti yfir landið í lesfimi
- Mar 6
- 1 min read
Á vef Stjórnarráðsins (4. mars 2026) má finna umfjöllun Mennta- og barnamálaráðuneytisins með yfirskriftinni „Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi“. Þar eru birtar niðurstöður lesfimiprófa í maí 2025 eftir sveitarfélögum. Snæfellsbær er þar í 5.-7. sæti yfir landið varðandi hlutfall grunnskólabarna sem nær skilgreindu lágmarksviðmiði á lesfimiprófi, þ.e. að nemendur nái a.m.k. 2. viðmiði. 82% nemenda okkar náðu lágmarksviðmiðinu.
Lesfimiprófin meta nákvæmni og hraða lestrar. Þau eru lögð fyrir þrisvar á hverju skólaári, í september, janúar og maí. Með tilkomu lesfimiprófa Matsferils sem voru fyrst lögð fyrir sl. haust voru niðurstöður fyrri prófa umreiknaðar til samræmis við matsþætti nýju prófanna þannig að hægt væri að meta framvindu í lesfimi nemenda.
Við erum stolt af þessum árangri og viljum leggja mikla áherslu á að viðhalda og efla læsi enn frekar. Æfingin skiptir þar miklu máli, sérstaklega hjá nemendum á yngsta stigi þegar lestrarfrænin er að þróast. Verum áfram dugleg að halda lestri að börnunum okkar, bæði í skólanum og heima.


















Comments