Mýrarprjónn notaður til að kenna börnum náttúrufræði
- Nov 26, 2025
- 2 min read
Nemendur á yngsta stigi Lýsudeildar í Grunnskóla Snæfellsbæjar voru á dögunum að vinna verkefni við gömlu heitu pottana á Lýsuhóli, Siggu og Stjána. Hafði forvitni þeirra teygt sig upp fyrir svæðið þar sem má finna hallamýri. Þau fengu þá hugmynd að kalla út héraðsfulltrúa Lands og skógar, og fyrrum nemanda Lýsuhólsskóla, til þess að kenna þeim meira um mýrar og mætti hún í stígvélum með mýrarprjón sem er prik til þess að stinga ofan í jörðina til að athuga dýpt á lífrænum jarðvegi.
Mýrarprjónninn vakti mikla lukku og þrátt fyrir rigningu og kulda gátu sumir nemendur ekki hætt að pota prikinu niður því gaman var að sjá hversu djúpt það fór á mismunandi stöðum. Eins skoðuðu þau saman gróðurinn en barnamosar og starir einkenna mýrina og tóku þau sýni af þeim plöntum inn í hús. Allir héldu svo inn og þurfti deildarstjóri að skreppa heim til að fara í þurrar buxur þar sem hún ákvað að nota ekki utanyfirbuxur í útivinnunni.
Þegar inn var komið kíkti héraðsfulltrúi inn til miðstigsins og svo efsta stigs og fræddi þau um endurheimtarverkefni sem snýst ekki eingöngu um jarðveg og gróður heldur einnig fisk og ál. Á miðstigi náði héraðsfulltrúi eyrum barnanna með því að útskýra búsvæði fiska og ála og röskun þeirra með skurðgreftri, þannig að lækjarfarvegir eru eins og herbergið þeirra heima þar sem rúmið og dótið þeirra er, en skurðurinn eins og skólastofan, þar er fínt að vera í ákveðinn tíma en ekki besti staðurinn til að eiga heima.
Héraðsfulltrúi þakkar nemendum og kennurum í Lýsudeild fyrir yndislegan dag og vill benda öðrum skólum á Vesturlandi á að það er alltaf hægt að hafa samband fyrir frekari fræðslu um landgræðslu og endurheimt vistkerfa í gegnum Land og skóg (áður Landgræðslan).
Iðunn Hauksdóttir
Höf. er héraðsfulltrúi Lands og skógar á Vesturlandi.


















Comments