top of page

Góðgerðardagar til styrktar Lilju Dögg 

  • 2 days ago
  • 1 min read

Góðgerðardagarnir 17.-19.mars og Opna húsið á fimmtudeginum tókst mjög vel. Allt starfsfólk skólans lagðist á eitt um að vinnan þessa daga gengi sem best og má segja að vinnusemi og gleði hafi einkennt dagana.  


Við erum mjög þakklát fyrir hve mörg komu á Opna húsið og styrktu verkefnið, þrátt fyrir að veðrið væri ekki sem best. Við upplifðum almenna ánægju hjá gestum auk þess sem við fundum fyrir jákvæðni í samfélaginu í tengslum við verkefnið. Nemendur stóðu sig mjög vel og sýndu ábyrgð og samkennd í verki. 


Ágóðinn af verkefninu var 1,5 milljón króna sem rennur óskiptur til Lilju Daggar og verður afhentur við fyrsta tækifæri. 


Við viljum þakka stofnunum og fyrirtækjum sem lögðu okkur lið þessa daga.  




 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

bottom of page