top of page

Góðgerðardagar - látum gott af okkur leiða

  • 2 hours ago
  • 1 min read

Fimmtudaginn 19. mars, kl. 16:00–18:00, verður opið hús í Ólafsvík þar sem ýmis varningur verður til sýnis og sölu.


Tilgangurinn með góðgerðardögunum er að láta gott af okkur leiða, vekja athygli á mikilvægi góðgerðar- og samkenndar og styrkja góð málefni í samfélaginu.


Þessa daga vinna nemendur að fjölbreyttum verkefnum sem verða seld á opnu húsi og mun ágóðinn renna til Lilju Daggar Gunnarsdóttur, fyrrverandi nemanda skólans.


Við ætlum að hafa gleði og bjartsýni í fyrirrúmi og breiða út jákvæðan boðskap um samfélagið.


Bæjarbúar eru hjartanlega velkomnir

Hlökkum til að sjá ykkur!

Nemendur og starfsfólk, Grunnskóla Snæfellsbæjar


 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

bottom of page