100 daga hátíð
- hugrune
- 11 minutes ago
- 1 min read
Nemendur 1.-4. bekkjar buðu aðstandendum sínum í Opið hús um miðjan janúar. Til stóð að bjóða í heimsókn í desember, en sökum veikinda bæði hjá nemendum og starfsfólki, þá var ákveðið að fresta því fram í janúar. Mæting var mjög góð og gaman að sjá hvað margir gáfu sér tíma til þess að koma til okkar.
Lesnar voru verðlaunasögur hvers bekkjar í Smásögusamkeppninni sem er árleg og haldin í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Herdís Hulda Smáradóttir í 1. bekk las söguna Týndi dropinn, Hildur Líf Emanúelsdóttir í 2. bekk las söguna Rósa fer í fjöruna, Elísabet Móey Aronsdóttir í 3. bekk las söguna Villi vampíra fer á ball og Harpa Karen Orradóttir í 4. bekk las söguna Hræðileg hrekkjavaka. Auk þessara verðlaunahafa hlaut Anna Veronika Smáradóttir í 3. bekk verðlaun fyrir söguna Hellnar, en hún er í flokki lengri sagna.
Nemendur sungu 3 lög og í lokin sýndu þau gestum sínum skólahúsnæðið og verkefni sem þau hafa unnið.




















Comments