

Rútuferðir á Halloween ball
1. til 4. bekkur getur tekið rútu kl 16:50 frá Hellisandi og til baka 18:20 eða verið sótt af foreldrum þegar ballið er búið kl 18:30. 5. til 7. bekkur getur tekið rútu kl 19:00 frá Hellisandi og heim kl 20:30 eftir ball.


Danskennsla
Í byrjun október var Jón Pétur Úlfljótsson danskennari í heimsókn í Grunnskóla Snæfellsbæjar norðan Fróðárheiðar, hann ásamt V. Lilju Stefánsdóttur kenndu nemendum í 1.-10. bekk dans Lagt var upp með að efla hópana á mið- og unglingastigi. Nemendum var kennt ýmist í hverjum bekk fyrir sig eða stigunum saman. Gekk þetta mjög vel og stóðu nemendur sig með mikilli prýði. Endaði danskennslan að þessu sinni svo á "danspartýi" þar sem allir nemendur 1. til 10. bekkjar hittust í íþr

Eineltisteymi GSnb
Forráðamenn nemenda! Eineltisteymi Grunnskóla Snæfellabæjar boðar foreldra til funda. Fundartímar bekkja Mánudagur 22. okt kl 17:00 3.bekkur á Hellissandi og 5. bekkur í Ólafsvík Mánudagur 22. okt kl 18:00 1.bekkur á Hellissandi og 9. bekkur í Ólafsvík Miðvikudagur 24.okt kl 17:00 6.bekkur í Ólafsvík Miðvikudagur 24.okt kl 18:00 8.bekkur í Ólafsvík Fimmtudagur 25.okt kl 17:00 10. og 7. bekkur í Ólafsvík Fimmtudagur 25.okt kl 18:00 2.bekkur á Hellissandi og 4. bekkur í ÓIafsví

Fjölmiðlaval
Nemendur í fjölmiðlavali á unglingastigi gáfu út fréttablað núna í septembermánuði. Blaðið fjallar um helstu hugðarefni nemendanna sem eru Anime, Féló, fótbolti og fleira. Tvö viðtöl eru í blaðinu við þau Fadel sundkennara og Sigurbjörgu umsjónarkonu félagsmiðstöðvarinnar. Skemmtilegt og fróðlegt lesefni sem allir eru hvattir til að lesa. Hér getur þú séð blaðið.


Perlað af krafti
Nemendur í 4. til 10. bekk í Grunnskóla Snæfellsbæjar perluðu af krafti á síðasta fimmtudag. Þann dag fóru nemendur á sal skólans með kennurum sínum og starfsfólki þar sem perluð voru armbönd fyrir Kraft stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Ragnheiður Davíðsdóttir, verkefnastjóri hjá Krafi mætti með efni í armböndin og leiðbeindi um gerð þeirra. Voru nemendur mjög áhugasamir og duglegir að perla. Hafði Ragnheiður það á orði að það


Góð gjöf
Í síðustu viku kom Pétur Steinar Jóhannsson, ritstjóri með meiru, með góða gjöf til skólans. Hann hefur ritstýrt Sjómannadagsblaðinu til fjölda ára og gaf hann skólanum 22 árganga af blaðinu. Við viljum færa honum þakkir fyrir þann hlýhug sem hann sýnir skólanum með þessari gjöf. Við sjáum það fyrir okkur að blöðin munu nýtast mjög vel við heimildavinnu í verkefnum tengdum átthagafræðinni og við heimildaöflun í þemaverkefnum í tengslum við fullveldisafmæli þjóðarinnar, 1. des