Bókaveisla í Klifi
Hin árlega Bókaveisla fór fram í Félagsheimilinu Klifi, þriðjudaginn 26. nóvember, en þetta var í 20. skipti sem Bókaveislan er haldin hér í bæ.
Í ár komu rithöfundarnir Gunnar Helgason, Halldór Armand, Maó Alheimsdóttir og Sunna Dís Másdóttir en Elísabet Jökulsdóttir varð því miður að afboða komu sína. Nemendur 10. bekkjar sömdu og fluttu kynningar á höfundunum sem lásu síðan upp úr nýútkomnum bókum sínum. Nemendur stóðu sig mjög vel og mátti heyra að höfundunum líkaði vel það sem fram kom í kynningunum.
Bókaveislan er átthagafræðiverkefni 10. bekkjar þar sem áhersla er lögð á að tengja saman skólann og samfélagið en árið 2022 hlaut skólinn Íslensku menntaverðlaunin fyrir verkefnið sem framúrskarandi þróunarverkefni.
Bókaveislan er orðin hluti af aðventu hjá íbúum Snæfellsbæjar og viljum við þakka þeim sem komu til að njóta kvöldsins með okkur.
Comments