top of page

Fréttaskot 26.03. 2020

Góðan daginn

Starfið í skólanum við þessar kringumstæður gengur mjög vel - allir eru að hjálpast að við að gera sitt besta, finna bestu lausnir hverju sinni. Nemendur standa sig frábærlega og eiga mikið hrós skilið. Þeir fara eftir þeim ströngu reglum sem gilda, eru jákvæðir, skilningsríkir og tillitssamir. Til fyrirmyndar - þetta eru frábærir nemendur sem eigum í Snæfellsbæ.

Við erum alltaf að meta starfið og kanna hvað við getum gert betur. Þetta gerum við með öryggi og hag nemenda og starfsfólks að leiðarljósi. Við hlítum þeim verklagsreglum sem okkur eru settar. Það er okkar mat að verklag í kringum hádegismatinn, norðan Heiðar sé of áhættusamt, það séu of miklar líkur á krosssmiti ef kemur til sýkingar innan skólans. Við viljum ekki taka þá áhættu. Frá og með morgundeginum styttum við skólatímann, hættum að afgreiða máltíðir í matsal í hádeginu en til reynslu verða nemendum færðar samlokur í sínar stofur.

Helstu breytingar eru því:

  • Nemendur ljúka deginum fyrr

  • Ein ávaxtastund og ein samlokustund (samloka og ávextir)

  • Einar frímínútur/hreyfistund (30 mín)

  • Skólabílsáætlun að morgni heldur sér en heimferð verður flýtt, sjá neðar

Okkur þykir leitt hvað þessi tilkynning kemur seint fram og okkur er það ljóst að þessar breytingar geta haft óþægindi í för með sér fyrir suma foreldra. Biðjumst við velvirðingar á því en okkur ber að hafa öryggi og hag nemenda og starfsfólks að leiðarljósi - það er markmiðið með þessum breytingum.

Athugasemdir og ábendingar eru vel þegnar og sendist á skólastjóra - hilmara@gsnb.is. og svo er alltaf gott að fá hvatningu og hrós 😉

Með vinsemd og virðingu

Skólastjórnendur GSnb

Skólabílstafla frá og með 27.03.

Morgunn

Frá Ólafsvík

1. og 2. bekkur kl 8:00

3. bekkur kl 8:20

4. bekkur kl 8:35

Frá Hellissandi

5., 6. og 7. bekkur kl 8:00

8., 9. og 10. bekkur kl 8:15

Skólalok

Frá Hellissandi

4. bekkur kl 12:00

3. bekkur kl 12:05

1. og 2. bekkur kl 12:40

Frá Ólafsvík

5., 6. og 7. bekkur kl 12:25

8., 9. og 10. bekkur kl 12:20

​Nýjar fréttir
Eldri fréttir
bottom of page