Skóli á nýju ári
![](https://static.wixstatic.com/media/40f2482f508ef20be178e5ddc8bbdaea.jpg/v1/fill/w_600,h_398,al_c,q_80,enc_auto/40f2482f508ef20be178e5ddc8bbdaea.jpg)
Skóli mun hefjast að nýju samkvæmt stundatöflu mánudaginn 7. janúar.
Tíminn sem nú fer í hönd er tími þar sem fjölskyldur og vinir koma saman, gera sér dagamun í mat og drykk, gefa gjafir og njóta samvista hver með sínum hætti. Njótum þessa tíma og minnumst þess af hverju við höldum jólin hátíðleg.
Að lokum vil ég minna á mikilvægi lesturs, haldið lestri að börnum ykkar, verið styðjandi í lestranámi þeirra og góðar fyrirmyndir. Að því sögðu sendi ég starfsfólki, nemendum og fjölskyldum þeirra mínar bestu jólakveðjur, megið þið eiga gleðileg jól.