Umferðaröryggi
Nú er daginn tekið að lengja og þá fjölgar börnum í umferðinni, bæði við leik og á leið til og frá skóla. Því er við hæfi að rifja upp nokkur atriði varðandi umferðaröryggi sem gott er að hafa í huga. Umferðarfræðsla í grunnskólum ber mestan árangur þar sem gott samstarf við heimili nemenda næst. Hlutverk heimilanna í umferðarfræðslu og forvörnum er mikilvægt því þar er mótunin sterkust.
Við hvetjum ykkur til að nýta góða veðrið og ganga eða hjóla í skólann með börnunum ykkar svo fækka megi bílum sem aka að skólanum á morgnana. Að vera börnum sínum góð fyrirmynd í umferðinni er öflugasta fræðslan auk þess að kenna þeim lög og reglur sem eru í gildi.
Núna fara fleiri nemendur að koma á reiðhjólum í skólann. Gæta þarf að því að öryggisbúnaður þeirra sé í lagi sem og notkun reiðhjólahjálma. Á þessari síðu er hægt að skoða fræðslumyndbönd um hjólreiðar http://www.samgongustofa.is/umferd/fraedsla-og-oryggi/fraedsla/reidhjol/ og í þessum ágæta bæklingi er m.a. hægt að fræðast um atriði sem hafa ber í huga varðandi hjólreiðahjálma https://www.landsbjorg.is/assets/myndir/umferd/us-hjalmar%20baeklingur%20lok%202006.pdf.
Á náms- og fræðsluvefnum www.umferd.is er svæði ætlað foreldrum/forráðamönnum. Hugmyndin er að leita eftir samstarfi við foreldra um leiðir sem þeir telja að komi sér vel í umferðarfræðslunni. Við þiggjum með þökkum allar hugmyndir og ábendingar frá ykkur. Hægt er að senda þær á netfangið hildur.karen.adalsteinsdottir@grundaskoli.is eða hafa samband við Hildi Karen í síma 8675602.
Athygli er vakin á að:
samkvæmt 40. gr. umferðarlaga mega börn yngri en 7 ára ekki vera hjólandi í umferðinni nema í fylgd með 15 ára og eldri.
eigi má reiða farþega á reiðhjóli eða rafvespu. Þó má vanur reiðhjólamaður sem náð hefur 15 ára aldri reiða barn yngra en 7 ára en ber þó að nota viðeigandi öryggissæti og búnað.
best er að nota hjálm, það er eina vitið. Börnum yngri en 15 ára er skylt að nota reiðhjólahjálma og viðeigandi hlífðarbúnað þegar þau ferðast um á reiðhjólum, rafvespum, hjólabrettum og línuskautum.