Fréttabréf GSnb
Frá síðasta fréttabréfi hefur hver viðburðurinn rekið annan. Slíkir viðburðir auðga skólastarfið og sýna hversu öflugt starf er unnið undir merkjum skólans og ætla ég að stikla á þeim helstu:
Útvarp GSnb var í loftinu í þrjá daga um miðjan desember.
Lýsustarfstöðin fékk Grænfánann afhentan í sjöunda sinn, 20. desember.
Ný heimasíða skólans fór í loftið á nýju ári.
Ásrún Kristjánsdóttir kenndi nemendum í 1.-10. bekk Lýsustarfstöðvar dans í þrjá daga og lauk þeirri kennslu með sýningu.
Danskennsla í 1.- 4. bekk á Hellissandi er á fullu þessa dagana undir stjórn Lilju Stefánsdóttur. Hver bekkur fær eina viku sem endar með danssýningu.
Á skákdaginn var skákin höfð í hávegum og æfð. Við fengum góða gesti í heimsókn.
100 daga hátíðin var haldin hátíðleg á starfstöðinni á Hellissandi þegar liðnir voru 100 dagar af skólaárinu.
Í lok janúar var átthagafræðiþema á starfstöðinni í Ólafsvík. Nemendur unnu að verkefnum samkvæmt námskrá skólans í átthagafræðum.
Fundir fyrir foreldra um framkvæmd námsmats í skólanum og annar fundur þar sem niðurstöður eineltiskannana voru kynntar.
Á degi stærðfræðinnar var lögð áhersla á vinnu sem tengist rúmfræði, mælingum og öðrum hlutbundnum verkefnum.
Unnin verkefni í tengslum við tannverndarvikuna.
Læsisátak fyrir nemendur í 5.-10. bekk og allir nemendur prófaðir í lestri.
Fyrirlestur fyrir starfsfólk um jákvæða sálfræði.
Þessa dagana eru nemendur í 9. bekk í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugum.
Uppbrot á hefðbundnu skólastarfi kallar á góða undirbúningsvinnu, gott skipulag og samstarf, jafnt innan skólans sem við nærsamfélagið. Vil ég þakka öllum sem komu að þessum viðburðum.
Hægt er að ná í nýjasta fréttabréfið hér og einnig undir linknum fréttbréf á heimasíðu GSnb.