top of page

Verum upplýst og örugg í umferðinni!

  • Writer: hugrune
    hugrune
  • Oct 27, 2016
  • 1 min read

Nú þegar það er farið að dimma er MJÖG mikilvægt að börnin og reyndar við öll notum endurskinsmerki eða endurskinsvesti þegar við erum í umferðinni.

Í myrkri sjást gangandi og hjólandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu. Útsýni ökumanna er allt annað en þeirra sem eru gangandi eða hjólandi. Gangandi eða hjólandi vegfarendur ættu því ætíð að nota viðeigandi öryggisbúnað s.s. endurskin, ljósabúnað og hjálm.

Við beinum því til ykkar að yfirfara hjólabúnað og yfirhafnir b...arnanna og ganga úr skugga um það að endurskinsmerki séu á yfirhöfnum og glitaugu og ljós á reiðhjólum.

Verum vel upplýst og örugg í umferðinni!

Hér má sjá gott myndband um Endurskinsmerkjatilraun https://www.youtube.com/watch?v=tIq7VBCoMsw

StartFragment

EndFragment

 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

bottom of page