Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Heim Hellissandur
Hellissandur

Vorferðalag 1. – 4. bekkjar

            

Nemendur í  1. – 4. bekk fóru í sina árlegu vorferð þriðjudaginn 1. júní. Farið var í heimsókn í Lýsuhólsskóla þar sem nemendurnir  tóku á móti okkur og sýndu skólann sinn. Farið var í Hofsstaðaskóg og leikið sér þar. 3. og 4. bekkur byrjuðu ferðina á að ganga yfir Egilsskarð og gekk það mjög vel þrátt fyrir mikið lausagrjót.

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 02. júní 2010 14:47
 

Grænfánahátíð

Föstudaginn 28. maí fengum við Grænfánann afhentan í annað sinn. Þennan dag var bæði nemendasýning og Grænfánahátíð hjá okkur. Hrefna Sigurjónsdóttir líffræðingur sem er stjórnarkona í Landvernd og Guðbjartur Hannesson þingmaður og formaður fjárlaganefndar mættu á svæðið. Umhverfisnefndin stóð upp og sagði fólki frá því sem þau hafa verið að gera til þess að fá þennan fána aftur. Hrefna og Guðbjartur voru mjög ánægð með okkar störf og afhentu okkur viðurkenningarskjal og Grænfánann sem krakkarnir í umhverfisnefndinni tóku við. Magnús skólastjóri sagði nokkur vel valin orð. Krakkarnir aðstoðuðu því næst Togga húsvörð við að draga fánan að húni og að því loknu voru sungin þrjú lög og svo fengu allir skúffuköku og djús. Hátíðin tókst mjög vel í alla staði og stóð umhverfisnefndin sig með prýði. Einnig var mjög ánægjulegt að sjá hve margir gestir voru mættir til að fylgjast með. Vonandi höfum við með þessu náð að vekja einhverja til umhugsunar um umhverfisvernd.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 02. júní 2010 14:30
 

Hópastarf í 3. og 4. bekk

Undanfarnar vikur hafa 3. og 4. bekkur verið að vinna verkefni um sólkerfi okkar. Bekkjunum hefur verið skipt í 7 hópa sem vinna verkefni á jafnmörgum stöðvum. Á stöðvunum eru nemendur að leita sér upplýsinga um reikistjörnurnar, skoða myndband og læra lag um röð reikistjarna frá sólu. Skoða stjörnumerkið sitt og stinga út mynd af því, fræðast um stjörnuspeki, búa til líkan af sólkerfinu og læra um tungl jarðarinnar og gera tilraunir tengdar því. Einnig læra þau sérstaklega um lagskiptingu jarðar, jarðskjálfta og fleira tengt jörðinni. Að lokum fræðast þau um geimferðir og gera líkan af geimfari. Nemendur hafa verið mjög áhugasamir í þessari vinnu en henni lýkur um miðjan maí. Foreldrar geta séð afrakstur verkefnisins á vorsýningu í lok skólaárs.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 05. maí 2010 09:15 Nánar...
 

Heimsókn

Orri Páll og Hrafnhildur fulltrúar frá Landvernd komu í heimsókn í skólann í dag. Þau komu til að skoða hvað og hvernig  hefur verið unnið í Grænfánaverkefninu. Von okkar er að við fáum Grænfánann afhentan aftur í vor til að flagga næstu tvö árin.

Þau hittu m.a. nemendur í 3. AG og ræddu við þau um umhverfismál.

 

1.bekkur

Það er gott að sleppa bókunum stundum og gera eitthvað annað, í dag voru krakkarnir í 1.bekk að puttaprjóna, vefa og klippa. Þau voru mjög áhugasöm og dugleg. Hérna fylgja myndir af þeim.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 04. maí 2010 17:11 Nánar...
 


Síða 1 af 6