Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Heim Ólafsvík
Ólafsvík

Kynningar í 7. bekk

Föstudaginn 14. maí síðastliðinn héldu nemendur 7. bekkjanna GJS og ÁGS kynningu á lokaverkefnum sínum í líffræði. Nemendur unnu saman í hópum og fjölluðu um líffærin: heili, lungu, eyra. hjarta, auga, bein og tennur. Eftir kynninguna buðu þau upp á kaffi og meðlæti sem þau höfðu útbúið sjálf. Skemmst er frá því að segja að vel tókst til og voru krakkarnir og kennarar þeirra sérlega glöð með hve margir forráðamenn og konur sáu sér fært að koma og vera með.

 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 18. maí 2010 17:22
 

Próftafla 5.-10. bekkjar

Þá er próftaflan fyrir þessa önn komin á vefinn. Prófin fara fram í næstu viku (17-20. maí) frá mánudegi til fimmtudags.

Vinsamlegast kynnið ykkur fyrirkomulag þeirra með að smella hér til að fá prentvæna útgáfu eða með að smella á nánar hnappinn til að lesa beint af vefnum

Gangi ykkur öllum vel í prófunum. 

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 13. maí 2010 14:29 Nánar...
 

Árshátíð 5.-7. bekkjar

Árshátíð 5.-7. bekkjar verður haldin í Félagsheimilinu Klifi, þriðjudaginn 23. mars kl. 18:30.

Nemendur eiga að mæta kl. 18:00. Að loknum skemmtiatriðum verður diskótek fyrir nemendur 5.-7. bekkjar. Rúta fer frá Hellissandi kl. 17:40 OG TIL BAKA AÐ LOKNU DISKÓTEKI (um kl. 21:00).

Allir eru velkomnir.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 23. mars 2010 15:43
 

Skíðaferð

46 nemendur af unglingastigi fóru til Dalvíkur í skíðaferð dagana 14. -16. apríl. Strax við komuna skelltu flestir sér upp í fjall og skíðað var langt fram á kvöld. Daginn eftir var skíðað og margir skelltu líka sér í sund. Skíðafærið var ekki með besta móti en krakkarnir létu það ekki stoppa sig og fóru margar ferðir upp í fjall. Ferðin var vel heppnuð í alla staði og stóðu krakkarnir sig vel á skíðum og brettum.

Staðarhaldarar hrósuðu krökkunum mikið fyrir framkomu og umgengni og það má segja að krakkarnir hafi verið sér og sínum skóla til sóma.

Myndir úr ferðinni koma síðar. 

 

 

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 19. apríl 2010 12:53
 

Loðnuskoðun

Síðastliðinn þriðjudag, 9. mars, bar vel í veiði hjá 8. bekk þegar Vignir Snær kom með loðnu í kennslustund. Loðnuna hafði hann fengið hjá föður sínum, Stefáni Kristóferssyni, sem er skipverji á Gunnari Bjarnasyni SH 122. Nú stendur hrygningartími loðnunnar yfir og því gátu nemendur skoðað hrogn hennar. Flestir voru mjög spenntir fyrir því að fá að handleika þennan litla fisk, ná úr honum hrognunum og skoða þau nánar.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 04. maí 2010 17:17 Nánar...
 


Síða 1 af 5