Grunnskóli Snæfellsbæjar

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Heim Umhverfisvefur
Umhverfisvefur

Grænfánahátíð

Síðastliðinn föstudag, 28. maí var Grænfánahátíð í skólanum í tilefni af því að þá fengum við Grænfánann afhentan í annað sinn til tveggja ára. Nemendur og starfsfólk skólans í Ólafsvík fóru í skrúðgöngu í tilefni dagsins en 7. og 8. bekkingar höfðu útbúið borða fyrir alla nemendur skólans með því að skrifa á þá ýmis hvetjandi orð sem tengdust umhverfisvernd, þessa borða báru nemendur í skrúðgöngunni.

Fyrir skrúðgöngunni fóru nemendur í 8. bekk. Fánaberar voru þeir Steinþór Stefánsson og Ólafur Páll Kristjánsson sem héldu á Grænfánanum og Snæfellsbæjarfánaum auk þess sem Benedikt G. Jensson og Hafþór I. Jónsson skiptust á að slá taktinn á trommu. Veðrið lék við okkur í göngunni og gáfu nemendur borðana sína þeim sem á vegi þeirra urðu og fóru einnig inn í fyrirtæki með þá. Vonandi höfum við með því náð að vekja einhverja til umhugsunar um umhverfisvernd.

   

Þegar komið var aftur í skólann settust nemendur í brekkuna úti á skólalóðinni og svo hófst formleg afhending Grænfánans. Magnús skólastjóri stjórnaði samkomunni en til okkar voru komnir góðir gestir að sunnan, þau Hrefna Sigurjónsdóttir líffræðingur sem er stjórnarkona í Landvernd og Guðbjartur Hannesson þingmaður og formaður fjárlaganefndar. Áður en afhendingin fór fram sungu nemendur skólans lagið "Nú er sumar" undir stjórn Lilju og Sigga sem spilaði á gítar. Því næst ávarpaði Hrefna viðstadda og afhenti skjal því til staðfestingar að við höfum hlotið Grænfánann öðru sinni og tók Svanborg við skjalinu. Að því loknu voru nemendur sem setið hafa í umhverfisnefnd þetta skólaár kallaðir upp og afhenti Guðbjartur þeim fánann, krakkarnir aðstoðuðu því næst Togga húsvörð við að draga fánann að húni.

Að lokum afhenti Azra Crnac, fyrir hönd umhverfisnefndarinnar í vetur, þeim Hrefnu og Guðbjarti gjafir frá okkur en það voru margnota innkaupapokar sem nemendur unnu í vetur upp úr gömlum gallafatnaði.

Hátíðin tókst í alla staði mjög vel og ekki spillti fyrir að vera úti í góðu veðri eins og var þennan dag. Einnig var gleðilegt að sjá hve margir gestir voru mættir til að fylgjast með. Í framhaldi af afhendingunni var opnuð vorsýning skólans á vinnu nemenda en í tilefni dagsins var nemendum boðið upp á skúffuköku sem þau höfðu sjálf bakað.

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 31. maí 2010 15:00
 

Úttekt á umhverfisstarfi skólans

Þann 12. maí komu í heimsókn til okkar frá Landvernd þau Orri Páll og Hrafnhildur. Tilefni heimsóknarinnar var að skoða umhverfisstarf skólans vegna umsóknar okkar um að fá Grænfánann afhentan aftur. Nemendur umhverfisnefndar þessa skólaárs voru boðaðir til fundar með þeim Orra og Hrafnhildi en auk þeirra sátu fundinn starfsmenn skólans í nefndinni og Lilja Stefánsdóttir f.h. stjórnenda.

Síðast uppfært: Mánudagur, 31. maí 2010 15:01 Nánar...
 

Náttúruspil

Náttúran.is er athyglisverður vefur með umhverfisvitund þar sem hægt er að fræðast um margt er lítur að grænum lífsstíl. Í tilefni af 3 ára afmæli vefsins hefur verið gerð vefútgáfa að Náttúruspilunum þeirra og höfum við fengið leyfi til að birta þessi spil hér á umhverfisvefnum okkar. Hér til vinstri á síðunni má sjá spilin en í hvert sinn sem farið er inn á vefinn birtist nýtt spil. Á þessum spilum má sjá vistvæn húsráð, fróðleik, uppskriftir og fleira. Við hvetjum ykkur til að skoða það sem á þeim birtist um leið og við þökkum þeim aðilum sem standa að vefnum Náttúran.is kærlega fyrir þeirra framlag.
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 29. apríl 2010 11:17
 

Dagur umhverfisins

Nú er komið að því að halda upp á Dag umhverfisins en það gerum við föstudaginn 23. apríl næstkomandi og munu nemendur vinna hluta úr skóladeginum að ýmsum verkefnum tengdum umhverfinu.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 04. maí 2010 17:23 Nánar...
 

Innkaupapokar saumaðir

Síðastliðinn vetur var farið í það verkefni að endurnýta gamalan gallafatnað til að sauma innkaupapoka. Tilgangur verkefnisins er tvíþættur, annar vegar að endurnýta og hins vegar að fá íbúa bæjarins til að minnka notkukn á plastpokum við innkaup.

Síðast uppfært: Mánudagur, 31. maí 2010 15:01 Nánar...
 


Síða 1 af 3