Miðvikudagur, 02. júní 2010 14:30
Aðstoðarskólasjóri
Nemendur í 1. – 4. bekk fóru í sina árlegu vorferð þriðjudaginn 1. júní. Farið var í heimsókn í Lýsuhólsskóla þar sem nemendurnir tóku á móti okkur og sýndu skólann sinn. Farið var í Hofsstaðaskóg og leikið sér þar. 3. og 4. bekkur byrjuðu ferðina á að ganga yfir Egilsskarð og gekk það mjög vel þrátt fyrir mikið lausagrjót.